Aðeins einn úr Stullunum sætir rástímabanni

Átjánda hola Grafaholtsvallar.
Átjánda hola Grafaholtsvallar. mbl.is/Árni Sæberg

Aganefnd Golfklúbbs Reykjavíkur (GR) hefur ákveðið að Steingrímur Gautur Pétursson sæti eins mánaða skráningarbanni á völlum klúbbsins, vegna þess að hópur sem hann er í forsvari fyrir, Stullarnir, nýttu sér skriftu til þess að skrá sig í rástíma.

Þannig gátu þeir skráð sig í bestu tímana á tilteknum degi um leið og opnaði fyrir skráningu. Skráningarbann yfir Steingrími tekur gildi um leið og opnað verður fyrir skráningu á velli GR á nýju tímabili og mun það standa yfir í mánuð, eins og áður sagði.

Í afsökunarbeiðni frá Stullum, sem send var stjórn GR, kemur fram að enginn hafi hafi vitneskju um að notast væri við skriftu við skráningu rástíma þeirra. Í bókun stjórnar um niðurstöðu aganefndarinnar segir að Stullar hafi einlæglega beðist afsökunar.

„Stjórn tekur fram að hún var meðvituð um þá skoðun margra félagsmanna að beita ætti hörðum  viðurlögum, jafnvel brottvísunum.  Stjórn taldi það engan veginn réttlætanlegt í ljósi réttmætrar ábendingar aganefndar um að reglur klúbbsins um rástímaskráningu hafi verið fábrotnar og hafi ekki haft að geyma slíkar viðurlagaheimildir, auk þess sem fyrir liggur að þjónustuskilmálar Golfbox voru ekki gerðir aðgengilegir fyrr en eftir að umrætt mál kom upp.  Hvað varðar aðra meðlimi Stulla heldur en þann sem sæta skal skráningarbanni, þá höfðu þeir ekki skráð sig sjálfir og hafa lýst því að þeim hafi ekki verið kunnugt um skráningaraðferðina.  Þeir hafa beðist einlæglega afsökunar, segir í tilkynningu stjórnar,“ sem birt var á vef GR í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert