Í varðhaldi vegna gruns um ítrekuð brot gegn börnum

mbl.is

Karlmaður á sjötugsaldri var í dag úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna gruns um fjölmörg brot gegn börnum. Þá var karlmaður á fertugsaldri úrskurðaður á mánudaginn í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í fjögurra daga gæsluvarðhald, eða til 10. desember vegna rannsóknar lögreglu á ætluðu kynferðisbroti.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu segir að karlmaður á sjötugsaldri hafi verið úrskurðaður í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur í fjögurra vikna gæsluvarðhald, eða til 6. janúar, að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Segir í tilkynningunni að maðurinn sé grunaður um „fjölmörg brot gegn börnum, þ.e. blygðunarsemis- og barnaverndarlagabrot. Einnig fyrir að reyna að mæla sér mót við börn í kynferðislegum tilgangi.“ Féllst Héraðsdómur á kröfu lögreglustjóra eins og hún var sett fram, það er, að „uppfyllt séu skilyrði um að ætla megi að kærði haldi áfram brotum á meðan málum hans er ekki lokið og að nauðsynlegt sé að verja aðra gegn brotum hans.“

Úrskurðurinn hefur verið kærður til Landsréttar.

Í fjögurra daga gæsluvarðhald

Þá var í sömu tilkynningu greint frá því að karlmaður á fertugsaldri hefði á mánudaginn verið úrskurðaður í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í fjögurra daga gæsluvarðhald, eða fram til 10. desember, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á ætluðu kynferðisbroti.

Segir í tilkynningunni að úrskurðurinn hafi verið kærður til Landsréttar, en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um hvorugt málið að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert