Guðmundur ráðinn til VÍS

Guðmundur Ólafsson.
Guðmundur Ólafsson. Ljósmynd/Vís

Guðmundur Ólafsson hefur verið ráðinn sem nýr forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar hjá VÍS. Síðast starfaði hann hjá Arion banka þar sem hann hefur gegnt ýmsum stjórnendastörfum undanfarin 14 ár eða frá árinu 2007.

Má þar helst nefna viðskipta- og vörustjóri Arion Premía, forstöðumaður fyrirtækjatorgs, forstöðumaður rekstrar og þjónustu á fyrirtækjasviði, svæðisstjóri á Norðausturlandi sem og útibússtjóri bankans á Egilsstöðum, að því er fram kemur í tilkynningu.

Guðmundur hefur þegar hafið störf hjá Vís.

Guðmundur sat í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs, var framkvæmdastjóri Héraðs- og Austurlandsskóga og var sölu- og rekstrarstjóri auglýsingadeildar Norðurljósa sem nú heitir Vodafone.

Guðmundur er með MBA gráðu í stjórnun með áherslu á stafræn viðskipti frá Zigurat Innovation and Technology Business School og Universitat de Barcelona. Hann er einnig með próf í rekstrarfræði frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst. Hann er jafnframt markþjálfi (e. executive coaching) og með löggildingu í verðbréfamiðlun frá Háskólanum í Reykjavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert