Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segist fagna því að fólk gefi kost á sér til trúnaðarstarfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Það sé merki um að eftirsóknarvert sé að vera í forystusveit fyrir næstu borgarstjórnarkosningar.
„Það kæmi á óvart ef það væri ekki áhugi fyrir því taka þátt. Við finnum fyrir því að okkar áherslur eiga góðan meðbyr hjá fólkinu,“ segir Eyþór í samtali við mbl.is, inntur eftir viðbrögðum við því að Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, ætli að sækjast eftir fyrsta sæti á lista flokksins í borgarstjórnarkosningum í vor.
Eyþór hafði áður tilkynnt að hann sæktist eftir endurkjöri, en Hildur tilkynnti um áform sín í gærkvöldi. Bæði á facebook-síðu sinni og í viðtali í Íslandi í dag.
Eyþór segir það alls ekki koma á óvart að mótframboð komi fram. Í síðasta prófkjöri hafi fimm tekist á um að leiða listann og hann eigi því allt eins von á að fleiri framboð komi fram. „Hingað til hef ég alltaf sótt umboð mitt í prófkjöri þar sem fleiri hafa sóst eftir því að leiða. Bæði hérna í Reykjavík og Árborg.“
Spurður út í það hvort áherslur þeirra séu ólíkar segir Eyþór að þau mál sem Hildur setji fram sem sín baráttumál, meðal annars leikskóla- og samgöngumál, hafi verið hluti af áherslumálum Sjálfstæðismanna í borginni á kjörtímabilinu. En hann minnir líka á húsnæðismálin sem aldrei megi gleyma, að hans sögn.
„Af því það eru mál sem varða okkur öll, bæði þá sem kaupa og leigja. Á síðustu mánuðum hefur leiguverð hækkað um 21 prósent og húsnæðisverð um 17 prósent. Þá hefur íbúðum í sölu í Reykjavík fækkað um um 70 prósent. Þannig það er eitt af stóru verkefnunum á næsta kjörtímabili að að skipuleggja nýtt land. Ég tel að skipulagsmálin séu risastórt mál.“
Aðspurður hvort hann sé stressaður yfir baráttunni sem framundan er, segist hann vanur að vera á sviði, bæði hinu pólitíska sviði og á tónleikum. „Það er bara heilbrigt að vera spenntur fyrir verkefnunum. Þetta er kannski svona upptaktur að kosningabaráttunni. Ég er líka spenntur að sjá hverjir verða í framboði fyrir hina flokkana og ég held að við eigum eftir að sjá miklar breytingar fram á vorið og ennþá meiri breytingar í vor.“
Hann segir það ekki liggja fyrir ennþá hvort aftur verði farið í leiðtogaprófkjör líkt og fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar. „Nú er það í höndum flokksmanna að velja leiðina og hvenær og hvernig verður stillt upp á lista. Ég er pollrólegur yfir því og bíð bara eftir niðurstöðu hjá félögum okkar í Sjálfstæðisflokknum.“