Jóhann Jónsson, umsjónarmaður fasteigna við Háskólann á Akureyri lýsir því í færslu á Facebook hvernig andlit hans og hendur byrjuðu að loga með sviða og hita á mánudaginn var eftir að hann komst í snertingu við hólk í vinnunni sem notaður hafi verið til geymslu á geislavirkum efnum.
Grunur beindist strax að geymsluhólknum umrædda og var Jóhann því fluttur með hraði á sjúkrahúsið á Akureyri þar sem hann var settur í einangrun. Í gær hafi svo eitt barnabarna hans fengið útbrot og var hún sömuleiðis sett í einangrun, að því er Jóhann greinir frá í færslu sinni.
„Sérfræðingar frá Geislavörnum ríkisins komu að sunnan og mældu allt í drasl og útilokuðu tankinn sem sökudólg.“
Jóhann var þó útskrifaður af sjúkrahúsinu sama dag og hann var lagður inn. Inntur eftir því segist honum líða ágætlega eftir atvikum.
„Þetta er svona að ganga niður. Ég hef aldrei á ævinni fengið ofnæmi þannig þetta var dálítið mikil tilviljun. Ég er bara á sterkum ofnæmistöflum og það er verið að reyna finna út úr því hvað orsakaði þessi viðbrögð.“
Þótt betur hafi farið en á horfðist segir Jóhann upplifunina hafa verið óhugnalega þar sem ofnæmisviðbrögðin hafi komið fram stuttu eftir að hann komst í snertingu við hólkinn.
„Þetta var eins og eitthvað úr bíómynd því það vissi enginn nein deili á þessum hólki. Hann var búinn að vera niðri í þessum kjallara í einhver 15-20 ár.“
Jóhann segist afar þakklátur fyrir það hvernig starfsmenn sjúkrahússins á Akureyri, Geislavörnum ríkisins og Háskólanum á Akureyri brugðust við málin.