Nýtt met slegið í sölu happdrættismiða

Einn heppinn miðaeigandi í Happdrætti Háskóla Íslands verður 110 milljónum …
Einn heppinn miðaeigandi í Happdrætti Háskóla Íslands verður 110 milljónum ríkari á morgun. Ljósmynd/HHÍ

Nýtt met var sett í miðasölu hjá Happdrætti Háskóla Íslands seinni partinn í gær. Ekki hafa fleiri miðar verið seldir í einum mánuði hjá happdrættinu á þessari öld. Þetta segir í tilkynningu frá Happdrætti Háskóla Íslands.

„Salan í þessum mánuði hefur farið fram úr okkar björtustu vonum og rúmlega það,“ er haft eftir Úlfi Gauta Haraldssyni, sölu- og markaðsstjóri HHÍ í tilkynningunni.

Einn heppinn miðaeigandi hlýtur 110 milljónir

Búast má við að miðasalan verði enn meiri þegar líður að útdrætti klukkan 18.00 á morgun þegar stærsti einstaki vinningur í sögu happdrættisins verður dreginn út.

Vinningurinn hljóðar upp á 110 milljónir króna en samkvæmt reglum happdrættisins verður að greiða pottinn, ellefufalda Milljónaveltu, út í síðasta útdrætti ársins og því ljóst að einn heppinn miðaeigandi er öruggur með að hreppa stóra vinninginn.

Að sögn Úlfars Gauta hefur miðasalan í happdrættinu almennt gengið vel síðustu ár enda miklar líkur á að hljóta vinning þar sem 70% af miðaverðinu rennur aftur í vinninga. Þá séu miðaeigendur einnig vel meðvitaðir um það góða málefni sem þeir styrki með kaupum á miðum í happdrættinu en allur hagnaður rennur í uppbyggingu húsnæðis fyrir Háskóla Íslands.

„Happdrættið hefur frá stofnun fjármagnað á þriðja tug bygginga á háskólasvæðinu, þar á meðal aðalbygginguna, Odda, Lögberg, Árnagarð, Læknagarð, Veröld Vigdísar, Háskólatorg og svo mætti áfram telja. Svo það er ekki bara til mikils að vinna fyrir miðaeigendur heldur þjóðina alla,“ segir hann.

Hver miði tryggir þátttöku í þremur leikjum

Hver miði í Happdrætti Háskólans tryggir þátttöku í þremur leikjum happdrættisins. Í Aðalútdrætti þar sem miðaeigendur skipta með sér um 80 milljónum króna, Milljón á mann þar sem fimm miðaeigendur hreppa eina milljón hver og svo Milljónaveltan. Í Milljónaveltunni eru settar 10 milljónir króna í pott í janúar. Þá er dregið úr öllum númerum, bæði seldum og óseldum. Ef potturinn gengur ekki út hækkar hann um aðrar 10 milljónir mánuðinn á eftir og svo koll af kolli.

Sem fyrr segir verður að greiða Milljónaveltuna út í desember og því alveg öruggt að einn heppinn miðaeigandi verður 110 milljónum ríkari á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert