Orsök veikinda starfsmannsins enn óljós

Geymsluhólkurinn var hannaður til að geyma geislavirk efni til að …
Geymsluhólkurinn var hannaður til að geyma geislavirk efni til að nota í rannsóknarskyni. Ljósmynd/Skapti Hallgrímsson

Ekki liggur fyrir hvað olli veikindum umsjónarmanns fasteigna við Háskólann á Akureyri sem veiktist snarlega eftir að hafa komist í snertingu við geymsluhólk sem legið hafði í kjallara bókasafns skólans í að minnsta kosti 20 ár í gær. Þetta segir Eyjólfur S. Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, í samtali við mbl.is.

Hólknum var ætlað að geyma geislavirk efni

Inntur eftir því segir Eyjólfur geymsluhólkinn umrædda vera hannaðan til að geyma geislavirk efni sem notuð eru í rannsóknarskyni. Þegar tilkynning barst um veikindi starfsmannsins hafi því vaknað grunur um að hólkurinn væri geislavirkur og starfsmenn Geislavarna ríkisins því kallaðir til. Akureyri.net greindi fyrst frá.

„Þeir voru mjög faglegir í sínu ferli, mættu strax á staðinn og gerðu mælingar sem leiddu svo í ljós að engin geislavirkni væri til staðar og hólkurinn því hættulaus. Við ætluðum svo bara að farga hólknum en mér sýnist Geislavarnir ríkisins ætla að taka hann og nota í sinni starfsemi.“

Samkvæmt Eyjólfi hefur ekki fundist orsakasamhengi milli veikinda starfsmannsins og geymsluhólksins. Það virðist því vera tilviljun að hann hafi veikst fljótlega eftir að hafa komist í snertingu við hólkinn.

Starfsmaðurinn var fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri í gær en fékk að fara heim sama dag og er hann á batavegi, að sögn Eyjólfs, sem kveðst að öðru leyti ekki geta tjáð sig um líðan mannsins.

Geymsluhólkurinn hafði legið í kjallara bókasafns skólans í minnst 20 …
Geymsluhólkurinn hafði legið í kjallara bókasafns skólans í minnst 20 ár. Ljósmynd/Skapti Hallgrímsson

Ekki útilokað að um myglu hafi verið að ræða

Atvikið minnir óneitanlega á mál Ragnheiðar Sigurðardóttur, fyrrverandi starfsmanns fyrirtækis sem leigði aðstöðu í húsi Orkuveitunnar, sem snarveiktist eftir að hafa komist í snertingu við myglaðan pappakassa af jólaskrauti í kjallara Orkuveituhússins, á meðan hún starfaði enn hjá fyrirtækinu, að því er hún greindi sjálf frá í Kveik í fyrra.

Spurður segir Eyjólfur ólíklegt að starfsmaðurinn hafi orðið útsettur fyrir myglu í kjallara bókasafnsins þó hann geti ekki útilokað það. Nýbúið sé að mæla allt húsnæði skólans fyrir myglu og engin mygla hafi fundist í þeirri byggingu sem kjallarinn er í.

„Maður veit hins vegar aldrei hvað getur verið í hlutum sem eru geymdir þarna niðri. Því þetta er gömul geymsla, full af hlutum sem hafa komið úr öllum áttum. Þannig það getur vel verið að eitthvað slíkt hafi legið annarsstaðar. Það er alveg fræðilegur möguleiki.“

Engar kenningar um slíkt séu þó á lofti eins og staðan er núna, að sögn Eyjólfs.

Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri.
Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri. Ljósmynd/Auðunn Níelsson

Afar óvenjuleg byrjun á vinnudegi rektors

„Við erum að reyna grafast fyrir um það hver orsök veikindanna voru en það er í höndum heilbrigðisstarfsmanna að finna út úr því. Þegar við fáum einhverjar frekari upplýsingar um þær munum við grípa til viðeigandi aðgerða.“

Eyjólfur segist síður en svo hafa búist við því að fyrsta verk hans þennan vinnudag yrði að taka á móti starfsmönnum Geislavarna ríkisins uppi í skóla, inntur eftir því.

„Þennan morguninn var ég ekki alveg með þetta í mínu mengi en þetta sýnir og sannar að maður veit aldrei hverju maður getur átt von á í þessu starfi. Sjálfum finnst mér þó áhugaverðast í þessu öllu saman hvað kerfið virkaði vel. Það var leyst úr þessu á innan við hálfum sólarhring frá því tilkynning barst.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert