Áætlað er að búið verði að bólusetja flesta við Covid-19 sem það kjósa með örvunarskammti í febrúar eða mars á næsta ári. Þetta kom fram í munnlegri skýrslu Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra um sóttvarnaaðgerðir og horfurnar fram undan í heimsfaraldri Covid-19.
„Ljóst er að vörn bólusetningar dvínar með tímanum. Það eru þær upplýsingar sem við erum að fá staðfestar. Þess vegna erum við núna búin að hefja örvunarbólusetningar og hafa núna rúmlega 121 þúsund einstaklingar, sextán ára og eldri, fengið slíkan örvunarskammt. Tölfræðin sýnir að örvunarbólusetningin veitir góða vörn gegn smiti,“ sagði Willum Þór.
Bætti við að fjórtán daga nýgengi smita sé tæplega sjö sinnum hærra hjá þeim sem eru fullbólusettir við sjúkdómnum heldur en þeim sem hafa þegið örvunarbólusetningu, þá er nýgengi sjúkrahúsinnlagna rúmlega fjörutíu sinnum hærra hjá þeim sem ekki eru fullbólusettir en hjá þeim sem hafa fengið örvunarskammt.
„Uppgjör vísindamanna við Háskóla Íslands sýnir enn fremur að gegn smiti eftir örvunarskammt er níutíu prósent meiri en eftir skammt tvö,“ sagði Willum Þór einnig og sagði það segja okkur að óyggjandi sé að áhrif bólusetningar dvíni. „Það er verið að tala um það núna að það sé jafnvel á bilinu fimm til sjö mánuðir.“