Sjálfstæðismenn „ágætis mannaveiðarar“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. Ljósmynd/mbl.is

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, byrjaði óundirbúna fyrirspurn sína til Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins, á því að spyrja hann hvernig hann skilgreini sjálfstæðismenn, á Alþingi í dag. 

„Því að mér hefur sýnst að þrátt yfir að hæstvirtur ráðherra og flokkur hans séu ágætis mannaveiðarar eins og dæmin sanna, þá vill kvarnast úr hugsjónunum þegar menn eru komnir í þennan flokk eða að minnsta kosti komnir í embætti. Eru ekki síðustu raunverulegu sjálfstæðismennirnir löngu farnir?“ sagði Sigmundur Davíð í kjölfar fyrri fyrirspurnar Halldóu Mogensen, þingmanns Pírata, til sama ráðherra, þar sem hún mismælti sig um fjölda þingmanna Sjálfstæðisflokksins.

Vísaði Sigmundur þannig óbeint í vistaskipti Birgis Þórarinssonar, sem kjörinn var á þing fyrir Miðflokkinn en sagði sig úr þingflokki hans og starfar nú í þingflokki Sjálfstæðisflokksins, áður en þing kom saman. 

Skiptir máli að halda fylginu

Ekki stóð á svörum Bjarna: „Háttvirtur þingmaður telur að það hafi eitthvað kvarnast úr hugsjónum hjá sjálfstæðismönnum, yfir tíma. Ég get nú ekki tekið undir það, það verður sitt að sýnast hverjum í þessu. Það er að minnsta kosti ekki þannig að það sé mikið að kvarnast úr þingflokknum hjá okkur eða úr hópi fylgismanna Sjálfstæðisflokksins, það skiptir máli. Það skiptir máli að maður haldi fylginu og það skiptir máli að halda þingmönnum á þingi, ef menn vilja koma hugsjónum sínum í framkvæmd,“ sagði Bjarni og hnýtti þannig í fylgistap Miðflokksins í nýafstöðnum alþingiskosningum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert