Þrír bekkir hafa verið sendir í sóttkví í grunnskólanum á Eskifirði en alls hafa átta smit greinst meðal nemenda í vikunni. Ekki liggur fyrir hvenær skólahald mun hefjast á nýjan leik. Þetta staðfestir Sigrún Traustadóttir skólastjóri.
Skólastarf hefur legið niðri síðustu tvo daga í Eskifjarðarskóla en ríflega 180 starfsmenn og nemendur voru sendir í skimun á þriðjudag eftir að smit kom þar upp daginn áður.
„Það er bara verið að gera allt til að finna útbreiðsluna. Þetta er að grassera hérna í samfélaginu,“ segir Sigrún í samtali við mbl.is og bætir við að þetta sé afar óþægileg staða.
Smitin í skólanum með tilheyrandi sóttkví starfsmanna og nemenda hafa haft mikil áhrif á samfélagið í heild sinni en foreldrar hafa þurft að taka sér frí frá vinnu til að vera heima með börnum sínum, að sögn Sigrúnar.
Hefur þetta meðal annars haft áhrif á dvalar- og hjúkrunarheimilið Hulduhlíð en starfsmenn þar eiga börn í skólanum.
Enn liggur ekki fyrir hvort að skólahald hefjist að nýju á morgun en fulltrúar frá aðgerðarstjórn og Heilbrigðisstofnun Austurlands funda á eftir ásamt fræðslustjóra um stöðuna.
Um leið og ákvörðunin verður tekin mun tölvupóstur fara á alla foreldra þar sem þeir verða upplýstir um stöðuna, segir Sigrún.