Víðtæk samfélagsskimun á Austurlandi

Víðtæk samfélagsskimun á sér stað á Austurlandi þessa dagana vegna …
Víðtæk samfélagsskimun á sér stað á Austurlandi þessa dagana vegna útbreiðslu veirunnar. mbl.is/Arnar Þór

531 sýni voru tekin á Austurlandi í dag en sýnatakan fór fram á þremur stöðum; Reyðarfirði, Eskifirði og á Egilsstöðum. Reynt er að kortleggja hversu útbreidd veiran er á Austurlandi með víðtækum samfélagsskimunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi.

Líkt og greint hefur verið frá hefur smitum fjölgað verulega á Austurlandi og greindust til að mynda þrjátíu manns með veiruna síðustu tvo sólarhringa. Raunar hefur verið nokkuð mikið um jákvæð smit í landshlutanum undanfarna viku.

Aðgerðarstjórn vegna faraldursins á Austurlandi þakkar þá íbúum á svæðinu fyrir skjót og góð viðbrögð í tilkynningunni og var fjöldi PCR sýna sem tekinn var í dag vonum framar.

Aftur verður boðið upp á sýnatöku á morgun á Egilsstöðum sem og á Reyðarfirði. Búið er að auka við mönnun til þess að koma í veg fyrir bið eftir sýnatökunni. Mælir lögreglan einnig með því að þeir sem sýni einkenni haldi sig heima við þar til niðurstöður skimunar liggja fyrir.

Leikskólinn Lyngholt á Reyðarfirði, grunnskóli Reyðarfjarðar og grunnskóli Eskifjarðar eru þá lokaðir áfram á morgun vegna smita sem greinst hafa í börnum sem og starfsfólki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert