Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar sérstaklega við ítrekuðum símaþjófnaði úr búningsklefum íþróttahúsa í færslu á Facebook-síðu sinni.
Þar kemur fram að nokkru slík mál hafi komið á borð lögreglu að undanförnu.
„Við viljum því minna fólk á að skilja ekki eftir verðmæti, eins og síma í ólæstum klefum. Gott er að nefna að flest íþróttahús bjóða upp á læsta skápa þar sem geyma má verðmæti meðan að æft er,“ segir í færslunni.