„Þú færð ekki sjálfstraust í jólagjöf“

Þorgrímur Þráinsson hefur gefið út 44 bækur.
Þorgrímur Þráinsson hefur gefið út 44 bækur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lífið getur verið dásamlegt og í fyrirlestrum sínum fyrir grunnskólakrakka um allt land hefur Þorgrímur Þráinsson lagt áherslu á mikilvægi þess að þeir efli sjálfstraustið til þess að njóta lífsins sem best og að hver sé sinnar gæfu smiður.

„Þú færð ekki sjálfstraust í jólagjöf heldur byggir það upp á litlu hlutunum dags daglega,“ segir hann.

„Litlu hlutirnir og að koma fallega fram við alla eru lykilatriði.“

Jákvæði boðskapurinn er aldrei fjarri þegar Þorgrímur er annars vegar og nýlega sendi hann frá sér tvær bækur um málefnið sem er honum svo kært. Tunglið, tunglið taktu mig er hugsuð fyrir 12 ára og yngri og lífsleikni- og sjálfstyrkingarbókin Verum ástfangin af lífinu er byggð á fyrirlestrum sem höfundur hefur haldið fyrir 10. bekkinga um allt land undanfarin 13 ár, höfðar til þeirra og ekki síður til þeirra sem eldri eru, því góð vísa er aldrei of oft kveðin.

Endurtekningin mikilvæg

„Ég endurnýja mig stöðugt sem fyrirlesara og því er ekki allt í bókinni sem ég hef fjallað um, en þar er líka annað mikilvægt sem ég tala ekki lengur um,“ segir Þorgrímur. Sömu heilræðin komi samt fyrir aftur og aftur og það sé meðvitað.

„Endurtekningin skapar meistarann,“ útskýrir Þorgrímur í formála og áréttar í spjalli. „Litlir hlutir skapa stóra sigra.“

Undir það falli til dæmis að vakna fyrr á morgnana, búa um rúmið, vaska upp, fara út með ruslið, fara á æfingu, lesa tíu blaðsíður í bók, sýna náungakærleik.

„Þegar þessu er sinnt líður manni betur, sjálfstraustið eykst og gengið verður betra,“ leggur hann enn og aftur áherslu á.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert