Um klukkan átta í kvöld voru björgunarsveitir í Mosfellsbæ kallaðar út til aðstoðar lögreglu við Hafravatnsveg vegna hálku.
„Þar var alveg fljúgandi hálka og fólk var að lenda í því að missa bílana út af og það voru bílar að snúast á veginum. Það voru rúmlega tíu manns sem lentu í hálfgerðri sjálfheldu – það var svo mikið svell á veginum,“ segir Davíð Már Bjarnason upplýsingafulltrúi Landsbjargar.
Alls lentu sjö bifreiðar í vandræðum í hálkunni.
„Það þurfti að kalla til bíl frá sveitarfélaginu til að sanda veginn svo það ætti að vera orðið betra þarna núna.“