128 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, þar af voru 64 í sóttkví við greiningu. Þetta kemur fram á covid.is þar sem enn fremur kemur fram að alls hafi 135 smit greinst í gær, þar af sjö smit á landamærunum.
14 eru á sjúkrahúsi, þar af þrír á gjörgæslu.
Tekin voru 3.073 sýni, þar af 964 einkennasýni. 1.350 eru nú í einangrun vegna Covid-19 og 2.262 í sóttkví.