14 liggja á Landspítala vegna Covid-19

Frá Landspítalanum.
Frá Landspítalanum. Ljósmynd/Landspítalinn

14 sjúklingar liggja á Landspítala vegna Covid-19. Meðalaldur þeirra er 65 ár.  Þrír eru á gjörgæslu, tveir þeirra í öndunarvél. 

1.354 sjúklingar, þar af 462 börn, eru á Covid-göngudeild spítalans, að því er kemur fram í tilkynningu.

Frá upphafi fjórðu bylgju hafa 222 verið lagðir inn vegna Covid-19 á Landspítala.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert