Urður Egilsdóttir
Siðanefnd Háskóla Íslands mun taka fyrir mál Bergsveins Birgissonar en hann hefur sakað Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra um ritstuld. Þetta staðfestir Skúli Skúlason, formaður siðanefndar, í samtali við mbl.is en nefndin fundaði í dag.
Að sögn Skúla mun nefndin nú afla nauðsynlegra gagna til þess að hún geti veitt álit sitt. Hann segir allan gang vera á því hversu langan tíma það taki nefndina að veita álit sitt og ekki sé búið að ákveða tímasetningu næsta fundar.
„Vinna siðanefndar byggir á því að beita óhlutdrægum vinnubrögðum og virða báða aðila á öllum stigum málsins,“ segir Skúli og bætir við að ekki sé um dómsmál að ræða.
„Við munum leggjast undir feld núna. Ég held það sé skynsamlegast fyrir alla.“