„Er hér farið vel með skattfé almennings?“

Hótel Saga.
Hótel Saga. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, gerði fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar að kaupa Hótel Sögu að umtalsefni á Alþingi í dag, en greint var frá því í dag að heildarkostnaður nemi um 6,5 milljörðum kr. „Er hér farið vel með skattfé almennings,“ spurði Hanna Katrín í umræðum um störf þingsins. 

Hann Katrín benti á, að stjórnvöld vilji kaupa Hótel Sögu fyrir Háskóla Íslands. Kaup og endurbætur séu áætluð að kosti 6,5 milljarða kr. og það sé heimild til þessa í fjárlögum.

Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar.
Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar. mbl.is/Arnþór Birkisson

Óútfylltur tékki

„Við vitum öll að það mun taka mörg ár að breyta þessu fornfræga húsi í skólahús og reynslan sýnir okkur líka að raunkostnaður er yfirleitt mun hærri en áætlanir. Það má jafnvel tala um óútfylltan tékka í þessu samhengi við svona gjörninga. Þess vegna hlýt ég að spyrja: Er þetta hagstæður gjörningur fyrir hið opinbera? Er hér farið vel með skattfé almennings? Er það betri meðferð opinbers fjár að kaupa, gera upp og gjörbreyta sögufrægu húsnæði sem er að sögn mikið skemmt, frekar en að reisa byggingu sem er sérstaklega hönnuð með þarfir háskólans í huga,“ spurði Hanna Katrín.

„Eru rekstraraðilar Hótel Sögu í sérstöðu þegar kemur að rándýrum reddingum?“

Hún bætir við, að þessar vangaveltur um forgangsröðun verkefna séu ekki gripnar úr lausu lofti. Hún nefndi sem dæmi, að ríkisstjórnin stefni í að reka ríkissjóð með 170 milljarða kr. halla á næsta ári.

„Hún telur sig ekki hafa svigrúm til að niðurgreiða sálfræðiþjónustu líkt og Alþingi hefur farið fram á og hún ætlar að lækka framlög til mennta- og menningarmála um 2,3 milljarða kr. á milli ára. Svo má líka horfa á þetta með þeim augum að víða um land er húsnæðisskortur og önnur hótel en Hótel Saga eru í rekstrarvanda. Ætli ríkisstjórnin stefni að því með sömu rökum að kaupa þau hótel og gera að íbúðum? Eða eru rekstraraðilar Hótel Sögu í sérstöðu þegar kemur að rándýrum reddingum eins og þessum sem almenningur greiðir fyrir á endanum,“ spurði Hanna Katrín að lokum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert