Opna á skipta búsetu barna

Ný barnalög voru samþykkt í apríl.
Ný barnalög voru samþykkt í apríl. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Foreldrar sem ætla að nýta sér nýtt úrræði í barnalögum um skipta búsetu barns geta nú þegar hafið ferlið með því að panta viðtalstíma hjá sýslumanni. Lögin taka gildi 1. janúar 2022.

Skilyrði þess að foreldrar geti samið um skipta búsetu barns er að þeir geti komið sér saman um atriði er snúa að umönnun og uppeldi barnsins og að heimili barnsins séu nálæg hvor öðru.

Barnið þarf að vera áfram í einum skóla eða leikskóla og eiga greiðan aðgang að tómstundastarfi og öðrum frístundum frá báðum heimilum án þess að fjarlægðir standa í veg fyrir því.

Byggist á því að foreldrar séu samstíga

Ekki er gert ráð fyrir að sýslumaður eða dómstóll geti úrskurðað eða dæmt skipta búsetu barns þegar foreldra greinir á.

Foreldrar barns í skiptri búsetu verða alfarið að koma sér saman um fyrirkomulag búsetu barnsins á báðum heimilum hverju sinni og hvernig skiptingu framfærslukostnaðar og annarra útgjalda er háttað. Þá verður ekki hægt að óska eftir staðfestingu samnings eða úrskurði um umgegni eða úrskurði um utanlandsferð barns. 

Fellir eldra fyrirkomulag úr gildi

Við staðfestingu samnings um skipta búsetu mun samningur, úrskurður eða dómsátt sem kann að liggja fyrir um umgegni eða meðlag felldur niður. 

„Árétta skal að barn mun áfram eiga eitt lögheimili, en barn verður skráð í þjóðskrá með búsetu hjá báðum foreldrum. Annað heimilið er lögheimili og hitt búsetuheimili og skulu foreldrar komast að samkomulagi um hjá hvoru þeirra barn eigi lögheimili og hjá hvoru þeirra barn eigi búsetuheimili,“ segir í tilkynningu frá Dómsmálaráðuneytinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert