Hafa samið um smíði nýrrar kirkju í Grímsey

Við Miðgarðakirkjugarð í Grímsey. Frá vinstri Arna Björg Bjarnadóttir verkefnisstjóri, …
Við Miðgarðakirkjugarð í Grímsey. Frá vinstri Arna Björg Bjarnadóttir verkefnisstjóri, Inga Lóa Guðjónsdóttir og Hilmar Páll Jóhannesson frá Loftkastalanum, Hjörleifur Stefánsson arkitekt og Alfreð Garðarsson sóknarnefndarformaður. Ljósmynd/Halla Ingólfsdóttir

Búið er að skrifa undir samning við smíðaverkstæði um smíði nýrrar kirkju í Grímsey. Undirbúningur fyrir byggingu kirkjunnar er vel á veg kominn en hönnun stendur yfir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra.

Á dögunum skrifaði sóknarnefnd Miðgarðakirkju undir samning við smíðaverkstæðið Loftkastalann um smíði nýrrar kirkju. Þá hefur Hjörleifur Stefánsson arkitekt verið ráðinn byggingarstjóri og Arna Björg Bjarnadóttir, verkefnisstjóri Glæðum Grímsey, verið fengin til að hafa yfirumsjón með verkefninu. Allir þessir aðilar eiga það sameiginlegt að hafa komið að minjavörsluverkefnum og endurgerð gamalla húsa með einum eða öðrum hætti. 

Nýja kirkjan verður stærri

Nýja kirkjan mun hafa augljósa skírskotun til þeirrar eldri en verður aðeins stærri vegna nútímakrafna. Einnig er horft til þess að nýja kirkjan nýtist til fleiri athafna en helgihalds. Áætlað er að smíða hana að hluta til í landi en reisa hana síðan í Grímsey í sumar.

Í tilkynningunni kemur fram að bygging nýrrar kirkju sé viðamikið samfélagslegt verkefni sem Grímseyingar leggja nú allt kapp á að verði að veruleika. Þegar hafa safnast fjármunir til byggingar hinnar nýju kirkju og eru eyjarskeggjar sagðir afar þakklátir öllum þeim sem hafa lagt verkefninu lið. Þeir standa þó frammi fyrir þeirri áskorun að enn vantar töluvert fé til uppbyggingarinnar.

Þeim sem vilja leggja söfnun fyrir nýrri kirkju lið er bent á reikning Miðgarðakirkju, 565-04-250731, kt. 4602692539.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert