Vart hefur verið við bikblæðingar á Þverárfjalli og Hámundastaðahálsi. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að með tilliti til veðurspár megi gera ráð fyrir blæðingum á Norðurlandi um helgina.
Þá eru vegfarendur sem verða varir við bikblæðingar hvattir til þess að hafa samband við vegagerðina í síma 1777.