Íslenska ríkinu er gert að greiða Guðjóni Skarphéðinssyni og dánarbúi Kristjáns Viðars Júlíussonar, tveimur af sakborningum í Guðmundar- og Geirfinnsmálum, samtals 610 milljónir. Þetta er niðurstaða Landsréttar, en áður hafði héraðsdómur sýknað ríkið af öllum kröfum í málinu.
Landsréttur vísaði hins vegar bótakröfu dánarbús Tryggva Rúnars Leifssonar frá dómi.
Ríkinu er gert að greiða Guðjóni 260 milljónir en dánarbúi Kristjáns 350 milljónir.
Þeir voru á meðal fimmenninganna sem voru sýknaðir í Hæstarétti fyrir um þremur árum síðan.
Guðjón gerði kröfu upp á um 1,3 milljarða vegna áralangrar óréttmætrar frelsissviptingar hans vegna Guðmundar- og Geirfinnsmála.
Krafa dánarbús Kristjáns var tvíþætt. Annars vegar miskabótakröfu að fjárhæð 1.629.323.810 krónur fyrir brot gegn friði, persónu og æru hans. Hins vegar kröfu að fjárhæð 25.530.910 vegna þess fjártjóns sem hann hafi orðið fyrir við það að möguleikar hans til tekjuöflunar ónýttust.
Dánarbú Tryggva Rúnars krafðist þess að honum yrðu greiddar alls 1.644.672.833 krónur.