Að minnsta kosti 160 Ómíkron-smit hafa verið staðfest hér á landi og var meirihluti þeirra meðal fólks utan sóttkvíar við greiningu. Már Kristjánsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild, telur líklegt að útbreiðsla veirunnar muni brátt líkjast því sem hefur sést hjá nágrannaríkjum okkar. Því megi hæglega búast við 600 smitum á dag á næstunni.
200 kórónuveirusmit greindust innanlands á síðastliðnum sólarhring, aldrei hafa fleiri greinst um helgi þegar færri sýni eru tekin að jafnaði.
„Okkur líst ekki vel á þetta. Öll reynsla í nágrannaríkjum er þannig að þetta mun bara vaxa núna í veldisvexti og við getum alveg gert ráð fyrir því að þetta verði eins og í Danmörku. Þá gætum við verið að sjá sirka 600 smit á dag. Ef svo fer, þá munum við vera með á tíu dögum sex þúsund smit og tólf þúsund smit á tuttugu dögum,“ segir Már í samtali við mbl.is.
Ef spáin raungerist segir hann eina kostinn í stöðunni að allt samfélagið bregðist við.
Tólf sjúklingar liggja nú inni á Landspítala vegna Covid-19, þar af er einn á gjörgæslu í öndunarvél.
Að sögn Más má ekki lesa of mikið í þær tölur en ef útbreiðsla veirunnar mun líkja eftir því sem gerðist á Norðurlöndunum má búast við 120 spítalainnlögnum í einu, ef gert er ráð fyrir að 1% þeirra sem veikjast muni leggjast inn.
„Þorri fólks mun ekki veikjast mikið og alvarlega en það er þetta sem út af stendur sem kemur til kasta heilbrigðisstofnana.“
Hann segir nú tvo mikilvæga þætti í stöðunni til að stemma stigu við útbreiðslu veirunnar. Annars vegar að grípa harkalega í taumana hvað varðar samkomutakmarkanir og hins vegar að hvetja fólk í örvunarbólusetningar og hefja bólusetningar barna á aldrinum fimm til 11 ára.
„Þeim mun meira ónæmi sem við höfum í samfélaginu, þeim erfiðara er fyrir veiruna að dreifast.“
Hann segir mikilvægt að bregðast við stöðunni. Að öðrum kosti muni heilbrigðiskerfið lenda í mjög miklum vandræðum.
Hvað gerist þá?
„Jafnvel þó að Covid væri ekki að dreifa sér þá er spítalinn með of fá sjúkrarúm miðað við þörfina í samfélaginu. Ef ekkert er gert hvað gerist þá? Fólk þarf bara að gera það upp við sig. Það er ekki pláss fyrir 120 til viðbótar.“
Að sögn Más hafa að minnsta kosti 160 Ómíkron-smit verið staðfest og var stór hluti þeirra meðal einstaklinga utan sóttkvíar við greiningu.
„Þetta segir mér að Ómíkron er örugglega komið út um allt í samfélaginu. Það er það sem er að reka þetta áfram – veldisvöxtinn.“