Áramótabrennum aflýst á Akureyri

Hvorki verða áramótabrennur á Akureyri né á höfuðborgarsvæðinu.
Hvorki verða áramótabrennur á Akureyri né á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Engar áramótabrennur verða haldnar á vegum Akureyrarbæjar um þessi áramót.

Ekki er talið skynsamlegt að halda fjöldasamkomur, nú þegar takmarkanir vegna sóttvarna miðast við 50 manns, faraldurinn er í vexti og mikil óvissa um þróunina næstu daga og vikur,“ segir í tilkynningu á vef bæjarins

Þá segir að þrátt fyrir að áramótabrennur fari fram utandyra dragi þær að sér fjölda fólks og því mikilvægt að sveitarfélög hvetji ekki til hópamyndunar við þessar aðstæður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka