Erlendir miðlar fjalla nú um formleg lok eldgossins í Geldingadölum en á laugardag sagði Veðurstofan frá því að ekki hafi sést hraunflæði frá gígnum í þrjá mánuði. Áfram mælist þó þensla á svæðinu.
Í viðtali við AFP-fréttaveituna nefnir Bryndís Ýr Gísladóttir, náttúruvásérfræðingur á Veðurstofunni, að gosið teljist nú vera lokið. Áfram fari þó fram mælingar á svæðinu.
Á vef the Guardian segir að goshrinan hófst 19. mars og stóð því yfir í sex mánuði. Eldgosið í Geldingadölum er því lengsta eldgosið hérlendis í 50 ár.