Íslensk söfn styrkt um 17 milljónir króna

Alls fá 32 söfn styrkveitingu úr safnasjóði í auka úthlutun …
Alls fá 32 söfn styrkveitingu úr safnasjóði í auka úthlutun sjóðsins í ár. mbl.is/Árni Sæberg

Alls fá 32 söfn styrkveitingu úr safnasjóði í auka úthlutun sjóðsins í ár. Heildarupphæð úthlutaðra styrkja hljóðar upp á rúmar 17 milljónir króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráði Íslands.

35 styrkir til símenntunarverkefnasafna

Tuttugu og þrjú verkefni fá styrk til stafrænna kynningarmála og 35 styrkir fara til símenntunarverkefnasafna og starfsmanna þeirra. Lilja Alfreðsdóttir, ferðamála-, viðskipta og menningarmálaráðherra, hefur staðfest úthlutun sjóðsins, að því er greint frá í tilkynningunni.

58 umsóknir fá styrki að þessu sinni, að upphæð 250-300 þúsund fyrir hvert verkefni. Styrkjum til stafrænna kynningarmála er ætlað að efla stafræna kynningu starfanna, efla söfnin sem viðkomustaði fyrir gesti með framsetningu á samfélagsmiðlum og á vefsíðum. Tilgangur styrkja til símenntunar er að styrkja faglegt starf safnanna.

Lilja Alfreðsdóttir, ferða- og menningarmálaráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir, ferða- og menningarmálaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Íslensk söfn geyma ótal fjarsjóði“

Haft er eftir Lilju Alfreðsdóttur, ferða- og menningarmálaráðherra að með aukaúthlutuninni vilji sjóðurinn styrkja enn frekar við söfnin sem viðkomustað fyrir gesti, jafnt íslenska sem og erlenda ferðamenn.

„Sérstaða íslenskra safna er mikil og með því að veita sérstaka styrki til stafrænna kynningarmála geta söfnin vakið enn meiri áhuga, veitt betri upplýsingar til gesta sinna og miðlað á fjölbreyttari máta. Íslensk söfn geyma ótal fjársjóði og það er vel þess virði að heimsækja þau árið um kring,“ segir hún.

Hlutverk safnasjóðs er að efla starfsemi safna með styrkjum, en viðurkennd söfn, sem ekki eru í eigu ríkisins, geta sótt um rekstrarstyrki til að efla starfsemi sína og  öll viðurkennd söfn geta sótt um styrki til skilgreindra verkefna. Menningarmálaráðherra úthlutar styrkjum úr safnasjóði að fengnum tillögum safnaráðs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert