Birgir Ármannsson með Covid-19

Birgir Ármannsson, forseti Alþingis.
Birgir Ármannsson, forseti Alþingis. mbl.is/Kristinn Magnússon

Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, er með staðfest Covid-19 smit. 

Þetta staðfestir Birgir í samtali við mbl.is. Hann segist hafa fengið staðfestinguna fyrir um klukkustund síðan. 

Birgir kveðst vera með hefðbundin flensueinkenni; hita og kvef. 

Hefur farið í próf daglega

„Ég hef verið að taka heimapróf og hraðpróf daglega frá því fyrir helgi, frá því smitið kom upp í þinginu. Svo í morgun var stór hópur þingmanna sem tók bæði hraðpróf og PCR-próf og þessi niðurstaða kom þá í ljós hjá mér. Ég hef ekki heyrt af öðrum smitum í dag,“ segir Birgir.

Birgir er annar þingmaður Sjálfstæðisflokksins til þess að greinast með Covid-19 undanfarna daga og sá áttundi á Alþingi sem er smitaður sem stendur. Auk þess hafa fjórir starfsmenn þingflokka greinst með kórónuveiruna. 

Óli Björn Kárason, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, greindist með Covid-19  í gær. Varamaður hans Arnar Þór Jónsson tók sæti í hans stað á Alþingi í dag, í fyrsta sinn og undirritaði að því tilefni drengskaparheit við stjórnarskránna. 

Arnar Þór Jónsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins undirritar drengskapaheit við stjórnarskránna.
Arnar Þór Jónsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins undirritar drengskapaheit við stjórnarskránna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

 Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert