Bráðvantar heilbrigðisstarfsfólk í bakvarðasveitina

Heilbrigðisráðuneytið sendi frá sér ákall og segir bráðvanta heilbrigðisstarfsfólk í …
Heilbrigðisráðuneytið sendi frá sér ákall og segir bráðvanta heilbrigðisstarfsfólk í bakvarðasveitina. Ljósmynd/Landspítali/Þorkell Þorkelsson

Heilbrigðisráðuneytið sendi frá sér ákall til heilbrigðismenntaðs fólks sem er reiðubúið að skrá sig í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar í dag. Nemar í hjúkrunarfræði, læknisfræði og sjúkraliðanámi geta skráð sig í bakvarðasveitina.

Í ákallinu segir að í ljósi mikillar fjölgunar Covid-smita í samfélaginu megi gera ráð fyrir vaxandi álagi hjá heilbrigðisstofnunum og hætt er við auknum forföllum starfsfólks vegna smita og sóttkvíar.

Alls hafa 152 heilbrigðisstarfsmenn skráð sig í bakvarðasveitina frá því að hún var endurvakin í október síðastliðinn. Sem fyrr er jafnan mest þörf fyrir sjúkraliða, hjúkrunarfræðinga og lækna en einnig er óskað eftir fólki á skrá úr öðrum heilbrigðisstéttum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert