Lét drauminn rætast og opnaði kabúlskan veitingastað

Tabasom Asadi kom til landsins fyrir þremur árum síðan ásamt …
Tabasom Asadi kom til landsins fyrir þremur árum síðan ásamt fjölskyldur sinni og var það draumur hennar lengi að opna sinn eigin veitingastað. mbl.is/Óttar

Yaaseen Restaurant er nýr kabúlskur veitingastaður sem var opnaður 16. desember að Suðurlandsbraut 10. Tabasom Asadi er bæði eigandi og kokkur staðarins og starfa systkini hennar einnig á veitingastaðnum.

Tabasom Asadi kom til landsins fyrir þremur árum síðan ásamt fjölskyldu sinni og hefur lengi dreymt um að opna sinn eigin veitingastað. Í samtali við mbl.is segir hún að hana hafi langað til þess að kynna kabúlska matarmenningu fyrir Íslendingum.

Veitingastaðurinn gefur innsýn inn í afganska menningu en á stöndum …
Veitingastaðurinn gefur innsýn inn í afganska menningu en á stöndum meðfram einum vegg veitingastaðarins eru myndir og textar um frægt afganskt fólk. mbl.is/Óttar

Ekki of sterkt fyrir íslenska bragðlauka

Aðeins er boðið upp á tvo rétti á veitingastaðnum en þeir eru vinsælustu réttirnir í Kabúl að sögn Tabasom. Hún segir matinn vera bragðsterkan en þó ekki of sterkan fyrir íslenska bragðlauka.

„Við ætlum að byrja smátt, með vinsælasta kabúlska réttinum, kabuli palaw, sem er hefðbundinn hrísgrjónaréttur með möndlum, rúsínum og gulrótum,“ segir Tabasom.

Tabasom Asadi er eigandi og kokkur veitingastaðarins Yaaseen Restaurant.
Tabasom Asadi er eigandi og kokkur veitingastaðarins Yaaseen Restaurant. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is/Óttar
mbl.is/Óttar
mbl.is/Óttar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert