Samið við Gray Line um Covid-flutninga

Fyrirtækið mun annars flutninga Covid-smitaðra á höfuðborgarsvæðinu sem ekki þurfa …
Fyrirtækið mun annars flutninga Covid-smitaðra á höfuðborgarsvæðinu sem ekki þurfa á flutningi að halda í sjúkrabíl. Ljósmynd/Aðsend

Fyrirtækið Gray Line mun annast flutninga Covid-smitaðra á höfuðborgarsvæðinu sem ekki þurfa á flutningi að halda í sjúkrabíl. Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samning um þessa þjónustu við fyrirtækið sem staðfestur hefur verið af heilbrigðisráðuneytinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráði Íslands.

Markmiðið að létta álagi af slökkviliðinu

Markmiðið með þessu sé að létta álagi af Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins sem annast sjúkraflutninga, að því er greint frá í tilkynningunni. Covid-flutningar hafi verið umfangsmiklir í starfseminni undanfarið og fyrirsjáanlegt sé að þörf fyrir þessa flutninga muni halda áfram að aukast á næstunni vegna fjlgunar smita. Flutningar samkvæmt samningnum munu hefjast eins fljótt og auðið er og í síðasta lagi 1. janúar næstkomandi.

„Samningurinn tekur til flutnings einstaklinga sem eru smitaðir eða ef grunur leikur á smiti, að því tilskyldu að viðkomandi séu færir um að sitja uppréttir í bíl og þurfi ekki á aðstoð heilbrigðisstarfsmanns að halda meðan á flutningnum stendur. Áskilið er að Gray Line veiti þessa þjónustu að lágmarki þann tíma sem Covid-göngudeild Landspítala er opin sem nú er frá kl. 08.00-23.00 alla daga vikunnar. 

Einnig skal fyrirtækið tryggja akstur farþega frá göngudeildinni eftir lokun ef þess gerist þörf. Þá er einnig miðað við að hægt sé að óska eftir þjónustu fyrirtækisins vegna flutninga einstaklinga sem eru utan höfuðborgarsvæðisins, t.d. í sumarhúsabyggðum í grennd við borgina,“ segir í tilkynningunni.

Til að byrja með muni Gray Line verða með þrjá bíla til að sinna þessu verkefni en muni fjölga bílum ef þess gerist þörf. Fyrirtækið skuli tryggja að bílar sem notaðir verða til flutninganna uppfylli allar öryggiskröfur sem gerðar eru í fólksflutningum og jafnframt að bílarnir og annar búnaður henti til flutninga á smituðu fólki þannig að viðeigandi smitavarnir séu tryggðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert