Tólf á Landspítala vegna Covid-19

Ljósmynd/Landspítalinn

Tólf sjúklingar liggja á Landspítalanum vegna Covid-19. Meðaldur þeirra er 58 ár. Þar af eru tveir á gjörgæslu og er annar þeirra í öndunarvél.

2.035 sjúklingar eru á Covid-göngudeild spítalans, þar af 718 börn, að því er segir í tilkynningu. 

Frá upphafi fjórðu bylgju í sumar hafa 235 verið lagðir inn vegna Covid-19 á spítalann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert