Um 300 greindust smitaðir af Covid-19 í gær. Frá þessu greindi Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands, í færslu á Facebook í dag.
Í færslunni segir hann tvöföldunartíma Ómíkron-afbrigðisins nær því að vera tveir til þrír dagar sem sé það mesta sem nokkurn tímann hafi sést í faraldrinum fram að þessu.
Þá segir hann faraldurinn vera í afar miklum vexti og að ekki sé þorandi að spá því hvenær viðsnúningi verði náð.
„Til þess þarf að sjá framganginn í þessum nýja COVID veruleika í 2-3 vikur,“ segir hann í færslunni.
Tólf sjúklingar liggja nú á Landspítalanum vegna Covid-19 og er meðalaldur þeirra 58 ár. Þar af eru tveir á gjörgæslu og er annar þeirra í öndunarvél.
2.035 sjúklingar eru á Covid-göngudeild spítalans, þar af 718 börn, að því er greint frá í tilkynningu frá Landspítalanum.
Frá upphafi fjórðu bylgju í sumar hafa 235 verið lagðir inn vegna Covid-19 á spítalann.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra mun kynna þær sóttvarnatakmarkanir sem í gildi verða yfir jól og áramót að loknum ríkisstjórnarfundi í Ráðherrabústaðnum í dag. Fundinum lýkur að öllum líkindum skömmu fyrir hádegi.