Heilbrigðisráðuneytið vinnur nú að reglugerðarbreyting sem sker úr um að verslunum með verslunarrými sem nemur upp að 100 fermetra flatarmáli sé heimilt að taka á móti 50 viðskiptavinum í einu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum verslunar og þjónustu en samtökin hafa átt í samskiptum við ráðuneytið vegna óljósra sóttvarnareglna um hver sé leyfilegur hámarksfjöldi viðskiptavina í verslunarrými hverju sinni miðað við gildandi reglur.
Með reglugerðarbreytingunni yrði leyfilegt að taka á móti 5 viðskiptavinum fyrir hverja 10 fermetra umfram 100 fermetra en þó aldrei fleiri en 500 viðskiptavinum í einu.
Svo dæmi sé tekið mega verslanir því taka á móti;
Áfram verður skýrt kveðið á um grímuskyldu í verslunum og að öðru leyti verður mælst til þess að þess verði gætt að 2 metra bil verði milli viðskiptavina, s.s. í biðröðum á kassasvæði.