Fjölgar um 396 á Covid-göngudeildinni

Frá gjörgæsludeild Landspítala.Einn er nú í öndunarvél.
Frá gjörgæsludeild Landspítala.Einn er nú í öndunarvél. Landspítali/Þorkell Þorkelsson

10 sjúklingar liggja á Landspítala vegna Covid-19.  Meðalaldur inniliggjandi er 64 ár. Þrír eru á gjörgæslu, einn þeirra í öndunarvél.  

2.419 sjúklingar eru í Covid-göngudeild spítalans, þar af 784 börn, að því er fram kemur á vef Landspítalans.

Í gær voru 2.023 í eftirliti göngudeildarinnar og fjölgar því um 396 þar milli daga.

Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 235 innlagnir vegna COVID-19 á Landspítala.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert