Alls greindust 448 með kórónuveiruna innanlands í gær og 40 á landamærunum. Alls voru 152 í sóttkví.
Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum frá almannavörnum.
Smitfjöldinn er sá mesti til þessa innanlands en í fyrradag voru smitin 443 talsins.
Í dag eru 2.969 í einangrun og 3.812 í sóttkví.
Fjöldi PCR-sýna sem tekin voru í gær kemur fram á covid.is þegar heimasíðan verður uppfærð nk. mánudag.