14 á spítala og þrír í öndunarvél

4.335 eru greindir með veiruna, þar af 1.033 börn.
4.335 eru greindir með veiruna, þar af 1.033 börn. Ljósmynd/Landspítalinn/Þorkell

14 sjúklingar liggja nú á Landspítala vegna Covid-19, þar af fimm á gjörgæslu og þrír í öndunarvél. Þetta segir í tilkynningu á vef spítalans.

4.335 eru nú greindir með veiruna og á göngudeild spítalans, þar af eru 1.033 börn.

Landspítali er kominn á hættustig og samkvæmt skilgreiningu vinnur spítalinn nú eftir viðbragðsáætlun. 

„Aukið og breytt álag er á fjölmargar starfseiningar. Þetta getur falið í sér bæði breytta starfsemi og tilflutning á verkefnum og starfsfólki,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert