664 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, þar af voru 255 í sóttkví við greiningu. Þetta kemur fram á covid.is þar sem enn fremur kemur fram að alls hafi 672 smit greinst í gær, þar af átta smit á landamærunum. Er um metfjölda smita innanlands að ræða.
Áður höfðu mest greinst 493 smit innanlands en það var á aðfangadag. Nýgengi innanlandssmita á hverja 100 þúsund íbúa er 1171 og hefur það aldrei verið hærra.
Tekin voru 3.505 sýni, þar af 2.244 einkennasýni. Alls voru 26,29% einkennasýna jákvæð en það er hæsta hlutfall jákvæðra einkennasýna síðan í júlí á síðasta ári en þá voru 30% einkennasýna jákvæð.
4.174 eru nú í einangrun vegna Covid-19 og 6.187 í sóttkví.
14 eru á sjúkrahúsi, þar af fimm á gjörgæslu.