Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir tekur sæti sem varaþingmaður fyrir Pírata í dag og verður þar með yngsti varaþingmaðurinn í sögu Íslands, 19 ára og átta mánaða að aldri.
Tekur hún við keflinu af Karli Liljendal Hólmgeirssyni sem settist á þing fyrir Miðflokkinn árið 2018, 20 ára og 355 daga gamall.
Þess má geta að Lenya Rún Taha Karim tekur einnig sæti varaþingmanns í þingflokki Pírata en hún verður fimmti yngsti varaþingmaðurinn til þess að taka sæti á Alþingi – Lenya lýsti þessu sem „gellu-takeover“ á Alþingi í dag í tísti í morgun.
Gunnhildur og Lenya undirrituðu drengskaparheit í byrjun þingfundar í klukkan ellefu í dag.
Jújú það er komið að því - gellu takeover á Alþingi enda er ykkar kona að taka sæti þar í dag
— Lenya Rún (@Lenyarun) December 27, 2021
Orkan sem ég fer með inn í daginn minn í boði @HeklaElisabet pic.twitter.com/ZEAxlChgFO