Virkja sms-kerfi til að vara við Heklugosi

Virkjað hefur verið SMS-kerfi til að vara fólk við sem …
Virkjað hefur verið SMS-kerfi til að vara fólk við sem fer inn á svæði nálægt Heklu. mbl.is/Sigurður Bogi

Almannavarnir og lögreglustjórinn á Suðurlandi hafa ákveðið að virkja sms-skilaboð sem verða send til fólks sem fer inn á fyrirframskilgreint svæði umhverfis Heklu. Þetta er gert til þess að upplýsa ferðafólk um að það sé komið inn á svæði nálægt Heklu þar sem lítill fyrirvari er til þess að bregðast við ef eldgos hefst. Greint er frá þessu í tilkynningu frá almannavörnum.

Síðast gaus í Heklu árið 2000 og þar á undan liðu 10 ár á milli síðustu gosa. Mælingar á þenslu sýna að kvikuþrýstingur í kvikuhólfi undir Heklu hefur náð sama marki árið 2006 og það var fyrir eldgosið árið 2000.

Tekið er fram að engir sérstakir fyrirboðar séu um að Hekla sé nær því að gjósa nú en áður, en rétt þykir að nýta þessa tækni til þess að upplýsa fólk sem fer á þetta svæði um hættuna.

Ekki er hægt að útiloka að sms-skilaboðin berist til fólks aðeins utan við skilgreint svæði og er því almenningur beðinn að hafa það í huga. Lögreglustjórinn á Suðurlandi varar fólk við því að fara í göngu á Heklu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert