21 sjúklingur liggur á Landspítala með Covid-19. Meðalaldur inniliggjandi er 63 ár. Fjórir eru á gjörgæslu, þrír þeirra í öndunarvél. Þetta kemur fram á vef spítalans.
Hefur fjölgað um sjö en í gær var greint frá því að 14 lægju á spítalanum vegna Covid-19. Sex af þeim sjö sem bættust við lágu á hjartadeild spítalans en sá sjöundi var fluttur þangað af Landakoti.
5.126 sjúklingar eru á Covid-göngudeild spítalans, þar af 1.142 börn.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 252 innlagnir vegna Covid-19 á Landspítala.