Ungir sem aldnir yljuðu sér í rjúkandi heitum pottum í Nauthólsvík

Það er gott að skella sér í pottinn.
Það er gott að skella sér í pottinn. mbl.is/Árni Sæberg

Fólk á öllum aldri nýtti góða veðrið í gær og heimsótti baðströndina í Nauthólsvík, enda margir enn í jólafríi og verða fram yfir áramót. Mörgum þykir einstaklega notalegt að ylja sér í heitum pottum Nauthólsvíkur, ekki síst þegar kalt er úti.

Hugrakkir sundgarpar fengu sér sundsprett í sjónum áður en þeir yljuðu sér í rjúkandi heitu pottunum.

Á sumrin er þó nokkuð vinsælt að fara í sjósund í Nauthólsvík, en færri sjást í sjónum á þessum tíma árs. Einungis þeir allra hörðustu og hugrökkustu fara líka á veturna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert