744 smit innanlands – metfjöldi á landamærum

Raðir í sýantöku við Suðurlandsbraut hafa verið langar undanfarna daga.
Raðir í sýantöku við Suðurlandsbraut hafa verið langar undanfarna daga. mbl.is/Sigurður Bogi

744 greind­ust með kór­ónu­veiruna inn­an­lands í gær, þar af voru 298 í sótt­kví við grein­ingu. Þetta kem­ur fram á covid.is þar sem enn frem­ur kem­ur fram að alls hafi 825 smit greinst í gær, þar af 81 á landa­mær­un­um. Er um met­fjölda smita á landamærunum að ræða.

Ný­gengi inn­an­lands­smita á hverja 100 þúsund íbúa er 1526,6 og hef­ur það aldrei verið hærra.

Tek­in voru 6.090 sýni, þar af 3.256 ein­kenna­sýni. Alls voru 20,30% ein­kenna­sýna já­kvæð en í gær voru 20,90% ein­kenna­sýna já­kvæð.

5.534 eru nú í ein­angr­un vegna Covid-19 og 7.710 í sótt­kví.

21 er á sjúkra­húsi, þar af sex á gjör­gæslu.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert