21 sjúklingur liggur á Landspítala með Covid-19. Meðalaldur inniliggjandi er 60 ár. Sex eru á gjörgæslu, fimm þeirra í öndunarvél.
Þetta kemur fram á vef spítalans.
Er það sami fjöldi og lá á spítalanum í gær.
5.834 sjúklingar eru á Covid-göngudeild spítalans, þar af 1.262 börn.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 256 innlagnir vegna Covid-19 á Landspítala.