Fimm í öndunarvél

Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 256 …
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 256 innlagnir vegna Covid-19 á Landspítala. mbl.is

21 sjúklingur liggur á Landspítala með Covid-19. Meðalaldur inniliggjandi er 60 ár. Sex eru á gjörgæslu, fimm þeirra í öndunarvél.  

Þetta kemur fram á vef spítalans.

Er það sami fjöldi og lá á spítalanum í gær.

5.834 sjúklingar eru á Covid-göngudeild spítalans, þar af 1.262 börn.

Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 256 innlagnir vegna Covid-19 á Landspítala.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert