Skeljungur veitti á dögunum 400.000 kr. styrk til menntasjóðs Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur. Guðríður Sigurðardóttir, formaður sjóðsins, tók á móti styrknum frá Unni Elvu Arnardóttur, forstöðumanni innri og ytri þjónustu Skeljungs IS ehf.
Sjóðnum er ætlað að styrkja tekjulágar konur og/eða mæður til menntunar svo að þær eigi betri möguleika á góðu framtíðarstarfi.
Í starfi þeirra fyrir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur hafa þær kynnst fjölda kvenna sem þurfa að leita til nefndarinnar sökum bágs efnahags en gætu átt kost á betri lífskjörum ef þær fengju stuðning til að afla sér meiri menntunar. Sjóðnum er ætlað að styrkja þessar konur til þess að sækja þá menntun sem þær kjósa.