Klukkan 10:22 varð skjálfti af stærð 3,7 um 2 km austur af Kleifarvatni.
Þessi skjálfti tilheyrir þeirri gikksjálftavirkni sem hefur verið viðvarandi undanfarna viku í tengslum við breytt spennuástand sökum kvikuinnskots við Fagradalsfjall, að því er Veðurstofa Íslands greinir frá.
Gera má ráð fyrir að skjálftans hafi orðið vart víða á suðvesturhorni landsins.