Mánudaginn 3. janúar verður skipulagsdagur í starfsemi grunn- og leikskóla, í frístundastarfi og í tónlistarskólum höfuðborgarsvæðisins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins en skipulagsdagurinn er sagður haldinn til að gefa starfsfólki tækifæri til að laga starfsemina að aðstæðum í samfélaginu og gildandi reglugerð.
„Miðað við hraða útbreiðslu Covid -19 og fjölgun smita í samfélaginu er viðbúið að röskun geti orðið á starfsemi leikskóla, grunnskóla, frístundaheimila, félagsmiðstöðva og tónlistarskóla á komandi dögum,“ segir í tilkynningunni.
Þá segir að gera megi ráð fyrir að loka þurfi deildum í leikskólum og fella niður kennslu í einstökum árgöngum eða stærri hópum í grunnskólum, um skemmri eða lengri tíma.
Stjórnendur muni þó að öllu jöfnu reyna að leysa forföll eins og hægt er.
„Til þess að styðja við þá viðleitni þurfa foreldar og forráðamenn að huga vel að persónubundnum sóttvörnum, börn eiga ekki að mæta í skóla með kvef einkenni, verði þeirra vart þarf að fara í PCR próf.“