Slökkvilið Vestmannaeyja var kallað út laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi þegar tilkynnt var um eld í bíl á athafnasvæði sorpeyðingarstöðvarinnar í bænum. Þegar komið var á vettvang reyndist mikill eldur laust í þremur bílhræjum sem biðu förgunar, auk sorphirðubíls.
Greiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins, að því er fram kemur í Facebook-færslu slökkviliðsins.
Eftir að mesti eldurinn var slökktur voru bílhræin fjarlægð eitt af öðru með aðstoð starfsmanna og tækja frá Kubb, farið yfir vettvanginn með hitamyndavél og þannig gengið úr skugga um að hvergi leyndust glæður eða hiti.
Ljóst er að um töluvert tjón er að ræða þar sem sorphirðubíllinn er líklega ónýtur. Lögregla rannsakar málið.