Samgöngur breytast á Austfjörðum á nýju ári

Akstursleiðirnar sem slíkar munu ekki breytast en fá þó ný …
Akstursleiðirnar sem slíkar munu ekki breytast en fá þó ný leiðarnúmer og nýjar tímatöflur. Samsett mynd

Rekstur Strætó á Austurlandi mun færast yfir til Vegagerðarinnar á nýju ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó en áður sá SV-Aust og Múlaþing um reksturinn ásamt samtökum sveitafélaga á Austurlandi og Austurbrú.

„Almenningssamgöngur á Austfjörðum verða því formlega hluti af leiðarneti Strætó á landsbyggðinni,“ segir í tilkynningunni.

Akstursleiðirnar sem slíkar munu ekki breytast en fá þó ný leiðarnúmer og nýjar tímatöflur. Gjaldskrá verður sú sama til að byrja með.

Ný leiðanúmer eru eftirfarandi:

Leið 91: Egilsstaðir – Reyðarfjörður – Eskifjörður – Norðfjörður
Leið 92: Reyðarfjörður – Fáskrúðsfjörður – Stöðvarfjörður – Breiðdalsvík
Leið 93: Seyðisfjörður - Egilsstaðir
Leið 94: Höfn – Djúpivogur – Breiðdalsvík
Leið 95: Egilsstaðir – Borgarfjörður

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka