Styttir einangrun niður í sjö daga

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Heilbrigðisráðherra hefur gert breytingu á reglugerð um sóttkví og einangrun og sóttvarnaráðstafanir. Með reglugerðarbreytingunni er einangrun einstaklinga sem hafa greinst með Covid-19 stytt í sjö daga.

Einangrunartímabilið þeirra sem eru fullbólusettir og einkennalausir var fram til 22. desember sjö dagar.

Telji læknar Covid-19 göngudeildar Landspítala hins vegar nauðsynlegt að framlengja einangrun einstaklings er þeim það heimilt.

Frá þessu greinir Stjórnarráðið í tilkynningu, en ákvörðunin er sögð gerð í samráði við sóttvarnalækni.

Víðtæk áhrif smita á samfélagið allt

„Við sjáum gríðarlegt álag á heilbrigðisstofnunum vegna mikilla smita í samfélaginu, sérstaklega er álagið mikið á Covid-göngudeild Landspítalans. Við sjáum líka víðtæk áhrif smita á samfélagið allt og því tel ég þetta vera rétt skref,“ er haft eftir Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra í tilkynningu.

„Ég hvet fólk til þess að halda áfram að fara varlega, og sýna starfsfólki Covid-göngudeildar áfram þolinmæði og virðingu. Við erum öll í þessu saman.“

Reglugerðarbreytingin tekur nú þegar gildi og getur bæði haft áhrif á lengd einangrunar hjá einstaklingum sem greindust með Covid-19 fyrir gildistöku, sem og eftir gildistöku. Reglugerðin mun birtast síðar í dag á vef Stjórnartíðinda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert